Þjónustan okkar
Engin tvö fyrirtæki eru eins og þess vegna aðlögum við þjónustuna að hverju fyrirtæki fyrir sig. Hvort sem þig vantar efni, hugmyndir eða aðstoð við samfélagsmiðlana finnum við leið sem hentar.
-
Við sjáum um ferlið frá hugmynd að fullbúnu efni - tökur, klippingu og frágang. Hægt er að panta staka efnisgerð eftir þörfum eða semja um reglulega efnisgerð.
Hentar vel ef: ykkur vantar t.d. Reel/TikTok, myndir eða annað efni fyrir ákveðna herferð, vöru, þjónustu eða tilefni.
-
Fyrir fyrirtæki sem vilja láta okkur sjá um samfélagsmiðlana frá A–Ö.
Við sjáum um hugmyndavinnu, efnisáætlun, efnisgerð, textagerð, skipulag og birtingar. Við fylgjumst einnig með niðurstöðum og nýtum þær til að þróa efnið og áherslurnar áfram.
Hentar vel ef: þið viljið halda samfélagsmiðlunum virkum og markvissum án þess að þurfa sjálf að sjá um skipulag, efnisgerð og birtingar.
-
Við skipuleggjum tökulotu þar sem við búum til fjölbreytt efni í einu. Eftir tökur sjáum við um vinnslu og skilum fullbúnum efnisbanka sem þið getið nýtt á samfélagsmiðlum næstu vikur eða mánuði.
Hentar vel ef: þið viljið sjá sjálf um birtingar en þurfið reglulega nýtt myndefni og myndbönd til að vinna með.
-
Fyrir fyrirtæki sem vilja sjá sjálf um efnisgerðina en vantar hugmyndir og stefnu.
Við skoðum vörumerkið, markhópinn og það sem hentar fyrirtækinu og útbúum hugmyndabanka sem þið getið unnið áfram með á ykkar eigin miðlum.
Hugmyndabankinn getur meðal annars innihaldið hugmyndir að Reels/TikTok, Stories og myndafærslum, efnisþemu, hooks og CTA, viðeigandi trend og forgangsröðun hugmynda.
Hentar vel ef: þið hafið tök á að búa til efnið sjálf en vantar hugmyndir að því hvað á að birta.
Finnum hvað hentar þínu fyrirtæki
Hafðu samband við okkur og við finnum saman þá þjónustu sem hentar ykkar þörfum