Um okkur

BT Media er skapandi fyrirtæki sem sérhæfir sig í efnisgerð fyrir samfélagsmiðla fyrirtækja. Við leggjum áherslu á persónulega og sveigjanlega þjónustu þar sem við kynnumst hverju fyrirtæki, markhópnum þess og því sem það vill ná fram.

Á bak við BT Media erum við Þórhildur og Brigitta. Við sameinum þekkingu okkar á markaðsmálum og viðskiptafræði við reynslu af efnisgerð og uppbyggingu samfélagsmiðla.

Þórhildur lýkur B.S. í viðskiptafræði með áherslu á markaðsmál í desember og er einnig með diplómu í sölu-, markaðs- og rekstrarnámi. Brigitta hefur lokið tveimur árum í sama B.S.-námi og hefur jafnframt reynslu af efnisgerð og uppbyggingu samfélagsmiðla.

Okkar styrkur liggur í því að sameina skapandi efnisgerð og markvissa hugsun. Við viljum skapa efni sem endurspeglar fyrirtækið, talar til rétta markhópsins og hefur skýran tilgang.

Við sköpum efni sem vinnur fyrir fyrirtækið.

Hafðu samband

Ertu með verkefni í huga eða langar að vita meira um þjónustuna okkar? Sendu okkur línu og við höfum samband.